föstudagur, 30. maí 2014

Gúllas og lífið


Ég eyddi frídeginum í að prjóna, hekla og horfa á friends. Það var hreinlega of freistandi. Skellti svo í dýrindis gúllasrétt  með sveppum og smá öl með því, það má allt þegar maður er í fríi. Það sem er samt mest pirrandi við að vera á Siglufirði er að hér er engin handavinnubúð, og ég er við það að bugast og taka trylling. Labbaði samt inní eitthvað gallerí á rölti mínu um bæinn, þar sem það voru bara einhverjar heklaðar fígúrur í glugganum og ég var að vonast eftir því að ég gæti keypt tróð eða garn þarna. ó boj, hefði betur sleppt því. Hélt að greyjið konan ætlaði aldrei að hætta að tala. Ég festist þarna inni á meðan konan fór yfir sinn feril í handavinnu, tók ekki nema svona hálftíma, mér til mikillar skemmtunar.

Var svo að vinna á ansi skemmtilegum tónleikum í gær, Pálmi Sigurhjartar og Siggi Björns voru að spila. Mæla algjörlega með að kíkja á tónleika með þeim.

Ætla að henda inn uppskriftinni af gúllasinu fyrir áhugasama, þetta er rosalega einfalt og tekur enga stund .. já okei fyrir utan klukkutímann sem þetta á að malla í pottinum.

300 gr nautagúllas, skorið í ræmur
1 msk hveiti - ég notaði meira en það
2 msk smjör
150 gr sveppir, heilir, skornir í tvennt eftir stærð, eða smærra
1 laukur, sneiddur þunnt
1-2 paprikur skornar í ræmur
1 msk tómatsósa
2 dl rjómi - ég notaði matreiðslu
1 teningur nautakraftur
salt og nýmalaður pipar

Aðferð:
hristið kjöt og hveiti saman og brúnið það í smjöri ásamt sveppum og lauk. Hellið rjómanum yfir ásamt tómasósu, kryddið og látið sjóða mjög hægt í klukkutíma.

Það stendur ekkert hvenær paprikan á að fara í svo ég henti henni bara í sama tíma og rjómanum, þetta kraumaði heldur alls ekkert í klukkutíma hjá mér, kanski svona hálftíma. En Sigurjóni fannst þetta allavega mjög gott, og sagði að kjötið væri akkúrat eins og það ætti að vera. Svo það hlýtur að vera í lagi.

Ég ætla að hendast í vinnuna, vinna frá hálf 11 - hálf 11 fös, lau, sun og mán.
Eigið annars góða helgi.

Þar til næst,
Inga Lára

mánudagur, 26. maí 2014

Fyrsta helgin á Sigló


Fyrsta helgin a Sigló var kanski ekki alveg drauma helgin, en ég þraukaði hana allavega, naumlega þó. Fyrsti frídagurinn á föstudaginn og Sigurjón stingur af og skilur mig eina eftir. Ég átti að vera í fríi föstudag, laugardag og sunnudag en þurfti að mæta í vinnu til þess að læra á helgar traffíkina og læra aðeins á Hannes, sem er veitingastaðurinn sem ég mun vinna á ásamt Kaffi Rauðku.

Mætti 12 í vinnu og það var brjálað að gera allan daginn, enda frábært veður. Klaufanum mér tókst síðan að klemma mig svakalega og það bókstaflega HÆTTI EKKI að blæða, sem mér fannst að sjálfsögðu afskaplega skemmtilegt eða hitt og heldur. Blæddi alltaf í gegnum plástrana og ég ekki voðalega smekkleg að þjóna til borðs. Að sjálfsögðu næ ég svo að hella kaffi yfir eldri konu sem er að borða, vill taka það fram að ég er ekki svona mikill klaufi, á þessum tímapunti er ég orðin dofin í öllum puttanum alveg upp í lófa. Sem betur fer var þetta bara lítið og fór bara á jakkann hennar og konan í fínu lagi en ég var alveg í hnút eftir þetta. Er búin að vinna um 11 leytið og labba heim, tek í hurðahúninn og fatta þá að ég gleymdi lyklunum í vinnuni, að sjálfsögðu.

Verkefni helgarinnar var að klára ungbarnateppi sem ég var að hekla fyrir litla skvísu sem er væntanleg í byrjun júni, og svo skellti ég í bjórvettling fyrir írska daga. Það tókst bara ágætlega vel, googlaði bjórvettlingur og fann þessa fínu uppskrift. Garnið er úr hagkaup.




Annars snýst lífið ekki um annað en vinnu þessa dagana, mikið sem ég hlakka til að komast í frí á miðvikudaginn. Þá skal sko þrifið .. eða horft á friends og prjónað, hef ekki alveg gert upp hug minn.

Þar til næst,
Inga Lára

föstudagur, 23. maí 2014

Úpps.


Jæjaaaa..
Ætli ég láti ekki eftir mér og verð vandræðalega wannabe týpan með bloggsíðu sem endist örugglega ekki nema í 2 daga, eeen við sjáum til.

Það hefur blundað í mér í meira en ár núna að gerast bloggari, ég er algjör bloggnörd og elska að lesa blogg.

Ég ætla mér ekki að blogga um daginn minn í smáatriðum eins og bloggin snérust um í 5-7. bekk. Heldur um daginn og veginn, og það sem mér dettur í hug hverju sinni. Hvort sem það er handavinna, eldamennska, útivera eða hvað sem er og svona líka til að vinir og ættingjar geti fylgst með mér og viti að ég sé á lífi þar sem ég flutti að heiman og alla leið til Siglufjarðar síðustu helgi.
p.s. hvorki ég né foreldrar mínir höfðum aldrei komið til Siglufjarðar áður, svo þetta verður fróðlegt. Lýst bara vel á þetta enn sem komið er. Sumarið lofar allavega góðu, er ekki annars alltaf gott veður fyrir norðan á sumrin?

ætla að enda þetta á einu af uppáhalds

‘Cause a little bit of summer’s, What the hole year ‘s all about’

p.s. ég var bara að uppgötva John Mayer fyrir stuttu, ég elskann.. eða svona. Bannað að dæma, country er best!

Þangað til næst,
Inga Lára