mánudagur, 30. júní 2014

Sumardrykkirnir 2014


Í tilefni þess að ég lifði vinnuhelgina af, er komin í tveggja daga frí og það eru 5 dagar í írska daga snilld ákvað ég að deila með ykkur uppáhalds drykkjunum mínum þessa stundina.

Sumardrykkurinn

Passoa
Bacardi Razz
Ávaxtasafi að eigin vali

Íste bland

Klakar
Vodka
Ávaxtate - sem er búið að standa og orðið kalt
Sprite
Dass af grenadine
Sítróna

Ávaxta te 40/ 60 sprite

Útilegu drykkurinn

Baileys
Kókómjólk

Blandið í þeim hlutföllum sem þið viljið.
Grillið sykurpúða og dýfið í blandið.
Njótið.

Fríið byrjar vel, miðnætur strandblak í gær með betri vaktinni og AK í dag. Ég ætla að njóta mín í botn. Mæli með að þið gerið það sama, hvort sem þið eruð í fríi eða ekki.

Þangað til næst,
Inga Lára

sunnudagur, 22. júní 2014

Jónsmessu gleði


Fríhelgi gekk í garð á föstudaginn, gleði og gaman yfir því. Fór á minn fyrsta KF fótboltaleik sem endaði að vísu ekki vel og ég var beðin um að vera ekkert að koma aftur, væri greynilega ekki happadýr.

Förinni var síðan heitið á Hofsós á laugardaginn og hvort sem þið trúið því eða ekki þá fór ég í sund. ÉG sko. Rosalega fallegt - allir í sund á Hofsós! Svo var skellt í sig og á ball með leynikærastanum mínum, Matta Matt! Ég týndi stelpunum fyrstu 5 mínúturnar og var ein upp við sviðið allt ballið og söng úr mér líftóruna. Mikið sem það var gaman! Um nóttina ákvað ég svo að fara heim og sleppa því að gista. Allt í góðu með það, ég var með far og stelpurnar ætluðu bara að gista í tjöldunum. Hins vegar, þegar ég er búin að taka tvö skref inn heima hjá mér fæ ég sms: ert með lyklana af bilnum, erum föst hér. Ég tek kast og gref ofaní veskið mitt, finn ég ekki bara lyklana af bílnum. Andskotinn. Alltaf ég. Krakkarnir voru sem betur fer með sængurnar inni í tjöldunum en allt dótið var læst í bílnum.

Ég þurfti því að keyra inn á Hofsós í dag með lyklana af bílnum. Mikið gaman, mikið fjör. Eða svona næstum! Ætlaði að taka bensín áður en ég myndi leggja í hann, það fór ekki betur en svo að þegar ég var ný byrjuð að dæla hættir dælan allt í einu og sama hvað ég geri þá byrjar hún ekki að dæla, ég fer inn eins og algjör asni og bið um hjálp. Dælan er þá biluð báðum megin og ég búin að dæla bensíni fyrir rúmlega 800 kr. frábært. Borga þetta litla bensín og kaupi mér eina pullu með öllu í leiðinni. Fer svo yfir á aðra dælu og bruna síðan af stað. Þegar ég er komin á hofsós tek ég eftir því að ég er með eitthvað þornað á höndinni, jújú sinnep útum alla peysu, á beltinu og handleggnum á mér. Týpíst Inga Lára. En við komumst heil heim.

Ég ætla að eyða restinni af deginum upp í sófa, horfa á friends, prjóna og troða í mig pizzu sem ætti að vera orðin tilbúin, ætla að setja mig í stellingar í sófanum og senda Sigurjón að sækja pizzuna. 






Þangað til næst,
Inga Lára

þriðjudagur, 17. júní 2014

HÆ HÓ OG GLEÐILEGAN 17 JÚNÍ!



Í tilefni dagsins ákváðum við Sigurjón að skella okkur til Akureyrar. Röltum aðeins um miðbæjinn og þrátt fyrir að suða mikið fékk ég ekki minion helíumblöðru. Ég er enþá í fýlu. Þar sem flestir í bænum voru fjölskyldufólk og við kanski ekki alveg markaðshópurinn fyrir hátíðarhöldin skelltum við í okkur ís og héldum í smá bíltúr - Goðafoss var næstur á dagskrá. Mikið sem það er fallegt hér á íslandinu okkar.




Við nenntum ekki að keyra tilbaka strax þar sem dagurinn var rétt að byrja og við höfðum hvort eð er ekkert betra að gera, næst var haldið til Húsavíkur. Mikið sem það er fallegt að keyra um landið okkar, ég varð meira að segja að hætta að hekla til þess að horfa útum gluggan og dást af landinu. Þegar við nálguðumst Húsavík var landið allt fjólublátt - já lúpínan er út um allt! sem er í lagi mín vegna þar sem mér finnst allt sem er fjólublátt fallegt! Það var 20 stiga hita og blanka logn á Húsavík og að vísu allstaðar sem við stoppuðum. Við röltum niður að höfn og fengum okkur að borða á veitingastaðnum Gamli Baukur. Mæli klárlega með þeim stað, rosalega gaman að koma þar inn - flottur staður, góður matur og góð þjónusta! Innanhús hönnunin og þemað er eins og í bát, gasalega flott. Síðar röltum við aðeins um og ég rakst á gallerí, að sjálfsögðu löbbuðum við þangað - handavinnukjéllingin inní mér varð alveg óð. Æj það er svo gaman að skoða svona. Þetta heitir Kaðlín handverkshús, mæli með því að skoða það ef þið eruð einhvern tíman á flandi um Húsavík. 

Pepp dagsins var samt í boði litlu stelpunnar sem var að borða á veitingastaðnum við hliðina á handverkshúsinu, hún kallaði sjáiði prinsessuna og benti á MIG! já mögulega það sætasta í heimi, ég brosi það sem eftir lifir dags.

Við létum ekki hér við sitja og rúntuðum á ásbyrgi. Engin orð fá því lýst. VÁ! Að keyra þarna uppað var eins og í draumi, mér leið eins og ég væri ekki lengur á íslandi heldur stödd í einhverjum ævintýra heim. Vá .. bara vá! Röltum aðeins þarna um, skoðuðum og nutum sólarinnar. Skyldustaður fyrir alla íslendinga að fara og skoða. Klárt mál.



Til hamingju með daginn íslendingar og til hamingju með landið okkar - Það er það fallegasta, fátt sem toppar íslenska náttúru.

Þangað til næst,
Inga Lára

fimmtudagur, 12. júní 2014

Sólríkur Sumardagur á Sigló



Ljúfur sumardagur á Sigló í dag. Baðaði mig í sólinni fyrir utan Rauðku í dag og heklaði. Skellti mér síðan upp á Hvanneyraskál sem var agalega skemmtileg og létt ganga. Henti í pastarétt í kvöldmatin og tókum svo til í öllu húsinu í kvöld. Vinnuhelgi frammundan, sem er að vísu fínt þar sem ég má ekki við meiri sól næstu daga - er eins og rassskellt jarðaber í framan.



Viðurkenni að mér þykir alveg rosalega gaman að horfa á fjöllin og sjá snjóinn þar sem það er blanka logn og steikjandi hiti. Siglufjörður er agalega fallegur bær.

Ég er búin að sitja föst við heklið þessa tvo frídaga mína, fékk loksins tróð og kláraði kúrudúlluna mína



Er svo búin að vera að leika mér að hekla svona þríhyrninga í dag, hugmyndin er að gera eitthversskonar skraut fyrir garðpartý í sumar - sjáum hvernig til tekst, hef ekkert alltof mikla trú á mér.




Eigið annars góða helgi, ég ætla allavega að gera það!

Þangað til næst,
Inga Lára

mánudagur, 9. júní 2014

THE FAULT IN OUR STARS



Kenni mikilli vinnu og mjög einhæfu lífi um bloggleysi mitt. Fékk loksins gott, langt og langþráð frí um helgina. Keyrði suður á föstudagsmorgun og mikið sem það var gott að komast heim. Kom heim og það blasti glænýr bíll beint úr kassanum við mér í hlaðinu auk þess var nýtt hjólhýsi upp við húsið. Geri mér þó litlar vonir um að að ég fái að setjast undir stýri á bílnum - ég verð nefnilega seint þekkt fyrir það að vera góður bílstjóri. Einmitt á laugardaginn lenti ég í því óhappi að brettið að framan fór af bílnum á leið minni í útilegu með frábæru fólki, sem endaði reyndar síðan með því að við pökkuðum saman tjöldum um miðja nótt og brunuðum á skagann á ball, í lopapeysunni og timberland skónum að sjálfsögðu.

Annars átti ég góða helgi heima á Akranesinu, letidagur í dag á Sigló en við skelltum okkur þó inná Akureyri í kvöld í bíó. Mig hefur dreymt um þennan dag, ó svo lengi. The Fault In Our Stars var myndefni kvöldsins, besta - já klárlega besta og uppáhalds bók sem ég hef lesið. Eða okay, hlustað á. Ég nefnilega kynntist því frábæra fyrirbæri þegar ég var í húsó - hljóðbókum! Þegar maður er með fullar hendur af handavinnu en langar samt að lesa bækur, þá er alveg hægt að gera bæði í einu. En allavega, myndin var afskaplega góð þó svo að það vantaði alveg helling í hana og hún væri smá breytt frá bókinni, þá skilaði söguþráðurinn sér vel og það sem mér persónulega fannst skemmtilegast var það að meiri hlutinn af setningunum í myndinni eru beint uppúr bókinni.

Mæli klárlega með að kíkja á hana í bíó en helst lesa eða hlusta á hana!
Ætla samt að gefa ykkur smá ráð, ekki fara með maskara í bíó - gætuð átt í hættu að sjá það þegar þið komið út í bíl að hann er lengst út á kinn. Úpps.

Farið og sjáið hana, trailerinn er hér

Þangað til næst,
Inga Lára