þriðjudagur, 18. nóvember 2014

Smoothie skál



Besta sem ég fæ.

Tveir bananar, slatti af frosnum berjum (blandaður poki), slumpa af möndlumjólk og góð teskeið hnetusmjör. Og úr verður þessi ó svo góði smoothie, sem mér finnst best að borða úr skál og hægt að setja allskonar ofaná hann. Þetta er frekar stór skammtur og maður verður vel saddur eftir eina skál, en samt ekki illt í magan saddur. Þetta er ekki þungt í maga sem er mikill kostur. Gott hvenær sem er, morgunmatur, hádegismatur, millimál (þá mikið minni skammtur) og svo finnst mér hrikalega gott að fá mér svona skál fyrir zumba tíma þar sem þeir byrja korter í átta á kvöldin og vont að borða eitthvað sem er þungt í magann á þeim dögum.


Ég mæli hiklaust með þessu og svo er hægt að bæta allskonar útí og prófa sig áfram.

Njótið.





Þangað til næst.

þriðjudagur, 11. nóvember 2014

Bústaðarfæði.


Jájá ég veit að ég er einn lélegasti bloggari í heimi. En hvað um það. Mikið búið að vera að gera hjá mér upp á síðkastið en um helgina átti ég æðislega helgi með frænku minni í bústað. Mikið prjónað, heklað, eldað, bakað og hlegið. Nauðsynleg næring fyrir huga og sál í góðum félagsskap. Ég ætlaði að deila með ykkur smá af gómsæta matnum sem við hristum framúr erminni um helgina.

Um leið og við komum á föstudeginum ákváðum við að skella í kanilsnúða með kremi til að eiga og narta í um helgina. Við hentum í deig en áttuðum okkur svo á því að ekki var til kökukefli í bústaðnum og við reyndum við að nota flöskur með misgóðum afleiðingum. Við ákváðum því að skella í kanilbollur. Gerðum bollur úr deiginu, smurðum ofan á með smjöri og settum svo kanilsykur yfir. Það kom bara ágætlega út og ég gæti alveg ímyndað mér að gera þetta aftur. Síðan skárum við þær í sundur og settum smjörkrem á milli.



Í Kvöldmatinn var hvítlauks marineruð kjúklingabringa, með smjörsteiktum sveppum, sætum kartöflum og salati. Já smjörsteiktir sveppir eru mögulega það besta sem ég veit. Klikka aldrei. Mæli með smjörsteiktum sveppum - með öllu!

Við hentum svo í amerískar pönnsur í laugardagsbrunch, að vísu bara tilbúnu flöskuna þar sem þú bætir bara við mjólk og hristir. Kom á óvart hvað þær voru góðar. Þá sérstaklega með nutella, þeyttum rjóma, jarðaberjum og mangó. Algjört lostæti.





Í kvöldmatinn vorum við svo með pasta með mexíkóostasósu og hvítlauksbrauð. Klikkar aldrei.

Í kvöldsnarl var svo súkkulaði ís með baileys sem sósu og fersk jarðaber. Ó svo gott.


Ég veit ekki með ykkur en persónulega finnst mér skylda að borða góðan mat þegar maður er í bústað, já og mikið af honum.




P.s. Ef þið eruð á leið í bústað munið þá eftir að taka með ykkur klósettpappír til öryggis. Þá lendiði ekki í því að þurfa að skeina ykkur með baby wipes. Ég tala af biturri reynslu. Baby wipes virka ekki.

Þangað til næst.

þriðjudagur, 4. nóvember 2014

Ís í morgunmat? uu já takk.

Okei, viðurkenni að þetta er villandi fyrirsögn en þetta er svona "next best thing".
Í þetta fór einn frosinn banani, smá möndlumjólk og matskeið af hnetusmjöri, þeytt í blandara. Þá verður þetta svona þykkt og mjúkt og áferðin er næstum eins og á ís. Og svo er þetta líka alveg hrikalega gott. Svo er þetta líka svo frábært í allt, sem morgunmatur, millimál eða kvöldsnarl. Mæli klárlega með þessu. 

Er kannski ekkert það girnilegasta sem maður hefur augum litið, en bragðlaukarnir verða ekki fyrir vonbrigðum. Ég lofa.


Þangað til næst.