föstudagur, 30. maí 2014
Gúllas og lífið
Ég eyddi frídeginum í að prjóna, hekla og horfa á friends. Það var hreinlega of freistandi. Skellti svo í dýrindis gúllasrétt með sveppum og smá öl með því, það má allt þegar maður er í fríi. Það sem er samt mest pirrandi við að vera á Siglufirði er að hér er engin handavinnubúð, og ég er við það að bugast og taka trylling. Labbaði samt inní eitthvað gallerí á rölti mínu um bæinn, þar sem það voru bara einhverjar heklaðar fígúrur í glugganum og ég var að vonast eftir því að ég gæti keypt tróð eða garn þarna. ó boj, hefði betur sleppt því. Hélt að greyjið konan ætlaði aldrei að hætta að tala. Ég festist þarna inni á meðan konan fór yfir sinn feril í handavinnu, tók ekki nema svona hálftíma, mér til mikillar skemmtunar.
Var svo að vinna á ansi skemmtilegum tónleikum í gær, Pálmi Sigurhjartar og Siggi Björns voru að spila. Mæla algjörlega með að kíkja á tónleika með þeim.
Ætla að henda inn uppskriftinni af gúllasinu fyrir áhugasama, þetta er rosalega einfalt og tekur enga stund .. já okei fyrir utan klukkutímann sem þetta á að malla í pottinum.
300 gr nautagúllas, skorið í ræmur
1 msk hveiti - ég notaði meira en það
2 msk smjör
150 gr sveppir, heilir, skornir í tvennt eftir stærð, eða smærra
1 laukur, sneiddur þunnt
1-2 paprikur skornar í ræmur
1 msk tómatsósa
2 dl rjómi - ég notaði matreiðslu
1 teningur nautakraftur
salt og nýmalaður pipar
Aðferð:
hristið kjöt og hveiti saman og brúnið það í smjöri ásamt sveppum og lauk. Hellið rjómanum yfir ásamt tómasósu, kryddið og látið sjóða mjög hægt í klukkutíma.
Það stendur ekkert hvenær paprikan á að fara í svo ég henti henni bara í sama tíma og rjómanum, þetta kraumaði heldur alls ekkert í klukkutíma hjá mér, kanski svona hálftíma. En Sigurjóni fannst þetta allavega mjög gott, og sagði að kjötið væri akkúrat eins og það ætti að vera. Svo það hlýtur að vera í lagi.
Ég ætla að hendast í vinnuna, vinna frá hálf 11 - hálf 11 fös, lau, sun og mán.
Eigið annars góða helgi.
Þar til næst,
Inga Lára
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli