Fyrsta helgin a Sigló var kanski ekki alveg drauma helgin,
en ég þraukaði hana allavega, naumlega þó. Fyrsti frídagurinn á föstudaginn og
Sigurjón stingur af og skilur mig eina eftir. Ég átti að vera í fríi föstudag,
laugardag og sunnudag en þurfti að mæta í vinnu til þess að læra á helgar
traffíkina og læra aðeins á Hannes, sem er veitingastaðurinn sem ég mun vinna á
ásamt Kaffi Rauðku.
Mætti 12 í vinnu og það var brjálað að gera allan daginn,
enda frábært veður. Klaufanum mér tókst síðan að klemma mig svakalega og það
bókstaflega HÆTTI EKKI að blæða, sem mér fannst að sjálfsögðu afskaplega
skemmtilegt eða hitt og heldur. Blæddi alltaf í gegnum plástrana og ég ekki
voðalega smekkleg að þjóna til borðs. Að sjálfsögðu næ ég svo að hella kaffi
yfir eldri konu sem er að borða, vill taka það fram að ég er ekki svona mikill
klaufi, á þessum tímapunti er ég orðin dofin í öllum puttanum alveg upp í lófa.
Sem betur fer var þetta bara lítið og fór bara á jakkann hennar og konan í fínu
lagi en ég var alveg í hnút eftir þetta. Er búin að vinna um 11 leytið og labba
heim, tek í hurðahúninn og fatta þá að ég gleymdi lyklunum í vinnuni, að
sjálfsögðu.
Verkefni helgarinnar var að klára ungbarnateppi sem ég var
að hekla fyrir litla skvísu sem er væntanleg í byrjun júni, og svo skellti ég í
bjórvettling fyrir írska daga. Það tókst bara ágætlega vel, googlaði bjórvettlingur og fann þessa fínu uppskrift. Garnið er úr hagkaup.
Annars snýst lífið ekki um annað en vinnu þessa dagana,
mikið sem ég hlakka til að komast í frí á miðvikudaginn. Þá skal sko þrifið ..
eða horft á friends og prjónað, hef ekki alveg gert upp hug minn.
Þar til næst,
Inga Lára

hehehe litli klaufabárður, þú segir svo skemmtilega frá að það er svo gaman að lesa, en vonandi er puttalingurinn þinn að jafna sig og þú hellir ekki yfir fleiri kúnna, grín!:):)
SvaraEyðaÉg segi friends og prjón þegar þú átt frí og tærnar upp í loft.
hahah jaa takk þú þarna yndi! Jáa það er svo mikið freistandi!
SvaraEyða