mánudagur, 9. júní 2014

THE FAULT IN OUR STARS



Kenni mikilli vinnu og mjög einhæfu lífi um bloggleysi mitt. Fékk loksins gott, langt og langþráð frí um helgina. Keyrði suður á föstudagsmorgun og mikið sem það var gott að komast heim. Kom heim og það blasti glænýr bíll beint úr kassanum við mér í hlaðinu auk þess var nýtt hjólhýsi upp við húsið. Geri mér þó litlar vonir um að að ég fái að setjast undir stýri á bílnum - ég verð nefnilega seint þekkt fyrir það að vera góður bílstjóri. Einmitt á laugardaginn lenti ég í því óhappi að brettið að framan fór af bílnum á leið minni í útilegu með frábæru fólki, sem endaði reyndar síðan með því að við pökkuðum saman tjöldum um miðja nótt og brunuðum á skagann á ball, í lopapeysunni og timberland skónum að sjálfsögðu.

Annars átti ég góða helgi heima á Akranesinu, letidagur í dag á Sigló en við skelltum okkur þó inná Akureyri í kvöld í bíó. Mig hefur dreymt um þennan dag, ó svo lengi. The Fault In Our Stars var myndefni kvöldsins, besta - já klárlega besta og uppáhalds bók sem ég hef lesið. Eða okay, hlustað á. Ég nefnilega kynntist því frábæra fyrirbæri þegar ég var í húsó - hljóðbókum! Þegar maður er með fullar hendur af handavinnu en langar samt að lesa bækur, þá er alveg hægt að gera bæði í einu. En allavega, myndin var afskaplega góð þó svo að það vantaði alveg helling í hana og hún væri smá breytt frá bókinni, þá skilaði söguþráðurinn sér vel og það sem mér persónulega fannst skemmtilegast var það að meiri hlutinn af setningunum í myndinni eru beint uppúr bókinni.

Mæli klárlega með að kíkja á hana í bíó en helst lesa eða hlusta á hana!
Ætla samt að gefa ykkur smá ráð, ekki fara með maskara í bíó - gætuð átt í hættu að sjá það þegar þið komið út í bíl að hann er lengst út á kinn. Úpps.

Farið og sjáið hana, trailerinn er hér

Þangað til næst,
Inga Lára

Engin ummæli:

Skrifa ummæli