þriðjudagur, 11. nóvember 2014

Bústaðarfæði.


Jájá ég veit að ég er einn lélegasti bloggari í heimi. En hvað um það. Mikið búið að vera að gera hjá mér upp á síðkastið en um helgina átti ég æðislega helgi með frænku minni í bústað. Mikið prjónað, heklað, eldað, bakað og hlegið. Nauðsynleg næring fyrir huga og sál í góðum félagsskap. Ég ætlaði að deila með ykkur smá af gómsæta matnum sem við hristum framúr erminni um helgina.

Um leið og við komum á föstudeginum ákváðum við að skella í kanilsnúða með kremi til að eiga og narta í um helgina. Við hentum í deig en áttuðum okkur svo á því að ekki var til kökukefli í bústaðnum og við reyndum við að nota flöskur með misgóðum afleiðingum. Við ákváðum því að skella í kanilbollur. Gerðum bollur úr deiginu, smurðum ofan á með smjöri og settum svo kanilsykur yfir. Það kom bara ágætlega út og ég gæti alveg ímyndað mér að gera þetta aftur. Síðan skárum við þær í sundur og settum smjörkrem á milli.



Í Kvöldmatinn var hvítlauks marineruð kjúklingabringa, með smjörsteiktum sveppum, sætum kartöflum og salati. Já smjörsteiktir sveppir eru mögulega það besta sem ég veit. Klikka aldrei. Mæli með smjörsteiktum sveppum - með öllu!

Við hentum svo í amerískar pönnsur í laugardagsbrunch, að vísu bara tilbúnu flöskuna þar sem þú bætir bara við mjólk og hristir. Kom á óvart hvað þær voru góðar. Þá sérstaklega með nutella, þeyttum rjóma, jarðaberjum og mangó. Algjört lostæti.





Í kvöldmatinn vorum við svo með pasta með mexíkóostasósu og hvítlauksbrauð. Klikkar aldrei.

Í kvöldsnarl var svo súkkulaði ís með baileys sem sósu og fersk jarðaber. Ó svo gott.


Ég veit ekki með ykkur en persónulega finnst mér skylda að borða góðan mat þegar maður er í bústað, já og mikið af honum.




P.s. Ef þið eruð á leið í bústað munið þá eftir að taka með ykkur klósettpappír til öryggis. Þá lendiði ekki í því að þurfa að skeina ykkur með baby wipes. Ég tala af biturri reynslu. Baby wipes virka ekki.

Þangað til næst.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli