Besta sem ég fæ.
Tveir bananar, slatti af frosnum berjum (blandaður poki),
slumpa af möndlumjólk og góð teskeið hnetusmjör. Og úr verður þessi ó svo góði
smoothie, sem mér finnst best að borða úr skál og hægt að setja allskonar ofaná
hann. Þetta er frekar stór skammtur og maður verður vel saddur eftir eina skál,
en samt ekki illt í magan saddur. Þetta er ekki þungt í maga sem er mikill
kostur. Gott hvenær sem er, morgunmatur, hádegismatur, millimál (þá mikið minni
skammtur) og svo finnst mér hrikalega gott að fá mér svona skál fyrir zumba
tíma þar sem þeir byrja korter í átta á kvöldin og vont að borða eitthvað sem
er þungt í magann á þeim dögum.
Ég mæli hiklaust með þessu og svo er hægt að bæta allskonar
útí og prófa sig áfram.
Njótið.
Þangað til næst.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli