Í tilefni dagsins ákváðum við Sigurjón að skella okkur til Akureyrar.
Röltum aðeins um miðbæjinn og þrátt fyrir að suða mikið fékk ég ekki minion
helíumblöðru. Ég er enþá í fýlu. Þar sem flestir í bænum voru fjölskyldufólk og
við kanski ekki alveg markaðshópurinn fyrir hátíðarhöldin skelltum við í okkur
ís og héldum í smá bíltúr - Goðafoss var næstur á dagskrá. Mikið sem það er
fallegt hér á íslandinu okkar.
Við nenntum ekki að keyra tilbaka strax þar sem dagurinn var
rétt að byrja og við höfðum hvort eð er ekkert betra að gera, næst var haldið
til Húsavíkur. Mikið sem það er fallegt að keyra um landið okkar, ég varð meira
að segja að hætta að hekla til þess að horfa útum gluggan og dást af landinu.
Þegar við nálguðumst Húsavík var landið allt fjólublátt - já lúpínan er út um
allt! sem er í lagi mín vegna þar sem mér finnst allt sem er fjólublátt
fallegt! Það var 20 stiga hita og blanka logn á Húsavík og að vísu allstaðar
sem við stoppuðum. Við röltum niður að höfn og fengum okkur að borða á
veitingastaðnum Gamli Baukur. Mæli klárlega með þeim stað, rosalega gaman að
koma þar inn - flottur staður, góður matur og góð þjónusta! Innanhús hönnunin
og þemað er eins og í bát, gasalega flott. Síðar röltum við aðeins um og ég rakst á gallerí, að sjálfsögðu löbbuðum við þangað - handavinnukjéllingin inní mér varð alveg óð. Æj það er svo gaman að skoða svona. Þetta heitir Kaðlín handverkshús, mæli með því að skoða það ef þið eruð einhvern tíman á flandi um Húsavík.
Pepp dagsins var samt í boði litlu stelpunnar sem var að borða á veitingastaðnum við hliðina á handverkshúsinu, hún kallaði sjáiði prinsessuna og benti á MIG! já mögulega það sætasta í heimi, ég brosi það sem eftir lifir dags.
Við létum ekki hér við sitja og rúntuðum á ásbyrgi. Engin
orð fá því lýst. VÁ! Að keyra þarna uppað var eins og í draumi, mér leið eins
og ég væri ekki lengur á íslandi heldur stödd í einhverjum ævintýra heim. Vá ..
bara vá! Röltum aðeins þarna um, skoðuðum og nutum sólarinnar. Skyldustaður
fyrir alla íslendinga að fara og skoða. Klárt mál.
Til hamingju með daginn íslendingar og til hamingju með
landið okkar - Það er það fallegasta, fátt sem toppar íslenska náttúru.
Þangað til næst,
Inga Lára



Engin ummæli:
Skrifa ummæli