sunnudagur, 22. júní 2014

Jónsmessu gleði


Fríhelgi gekk í garð á föstudaginn, gleði og gaman yfir því. Fór á minn fyrsta KF fótboltaleik sem endaði að vísu ekki vel og ég var beðin um að vera ekkert að koma aftur, væri greynilega ekki happadýr.

Förinni var síðan heitið á Hofsós á laugardaginn og hvort sem þið trúið því eða ekki þá fór ég í sund. ÉG sko. Rosalega fallegt - allir í sund á Hofsós! Svo var skellt í sig og á ball með leynikærastanum mínum, Matta Matt! Ég týndi stelpunum fyrstu 5 mínúturnar og var ein upp við sviðið allt ballið og söng úr mér líftóruna. Mikið sem það var gaman! Um nóttina ákvað ég svo að fara heim og sleppa því að gista. Allt í góðu með það, ég var með far og stelpurnar ætluðu bara að gista í tjöldunum. Hins vegar, þegar ég er búin að taka tvö skref inn heima hjá mér fæ ég sms: ert með lyklana af bilnum, erum föst hér. Ég tek kast og gref ofaní veskið mitt, finn ég ekki bara lyklana af bílnum. Andskotinn. Alltaf ég. Krakkarnir voru sem betur fer með sængurnar inni í tjöldunum en allt dótið var læst í bílnum.

Ég þurfti því að keyra inn á Hofsós í dag með lyklana af bílnum. Mikið gaman, mikið fjör. Eða svona næstum! Ætlaði að taka bensín áður en ég myndi leggja í hann, það fór ekki betur en svo að þegar ég var ný byrjuð að dæla hættir dælan allt í einu og sama hvað ég geri þá byrjar hún ekki að dæla, ég fer inn eins og algjör asni og bið um hjálp. Dælan er þá biluð báðum megin og ég búin að dæla bensíni fyrir rúmlega 800 kr. frábært. Borga þetta litla bensín og kaupi mér eina pullu með öllu í leiðinni. Fer svo yfir á aðra dælu og bruna síðan af stað. Þegar ég er komin á hofsós tek ég eftir því að ég er með eitthvað þornað á höndinni, jújú sinnep útum alla peysu, á beltinu og handleggnum á mér. Týpíst Inga Lára. En við komumst heil heim.

Ég ætla að eyða restinni af deginum upp í sófa, horfa á friends, prjóna og troða í mig pizzu sem ætti að vera orðin tilbúin, ætla að setja mig í stellingar í sófanum og senda Sigurjón að sækja pizzuna. 






Þangað til næst,
Inga Lára

Engin ummæli:

Skrifa ummæli