mánudagur, 27. október 2014

Krosssaums gaman

Þar sem ég er algjör handavinnu lúði og finnst fátt skemmtilegra heldur en að eyða deginum með prjónið, heklið eða nálina við hönd fannst mér kominn tími á eitt handavinnu tengt blogg.  Ég er alltaf með margt í gangi í einu og á erfitt með að klára verkefni og fæ fljótt leið á verkefnunum sem ég er að gera vegna þess að ég er alltaf að fá fleiri og fleiri hugmyndir af því sem ég gæti gert.

Ég hafði ekki gert neinn útsaum síðan ég hætti í húsó í vor og fannst kominn tími á smá dundur. Ég missti mig á pinterest að sjálfsögðu og er komin með svona 10 hluti sem mig langar að gera en byrjaði á að gera eina krosssaums hauskúpu. Prentaði bara út mynd af hauskúpu og teiknaði svo upp á rúðustrikað blað svona svo hún væri nokkurn veginn eins, síðan gerði ég allskyns mynstur inní í 4 litum. Lengstan tíma tók að teikna þetta allt upp og reyna að fá það til að passa, þolinmæðin stundum alveg á þrotum. En það hafðist, tók ekki nema einn dag og svo keypti ég þennan myndaramma í IKEA. Að vísu ekki áfallalaust þar sem ég braut auðvitað þann sem ég tók fyrst. Á reyndar eftir að strauja myndina en hafði ekki alveg þolinmæði í það í gær. Það gerist einn daginn. Eða ekki. Ég er alveg ágætlega löt með svona lagað stundum.



Ég fer að taka mig á í þessum bloggum. Ég lofa. Eða ekki.


Þangað til næst.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli