Á miðvikudaginn fórum við mamma uppí bústað í smá kósý heit.
Ég þurfti að vísu að fara heim daginn eftir til að mæta í vinnu en pabbi tók
minn stað. Þegar maður fer í bústað finnst mér skylda að taka eitthvað
heimabakað með. Þetta er uppskrift sem við gerðum þegar ég var í húsó og við
kölluðum alltaf “góða kakan” svo að ég hef ákveðið að halda því nafni bara.
Súkkulaðiterta
125 g smjörlíki
200 g sykur
2 egg
255 g hveiti
3 msk kakó
1 tsk matarsódi
1 tsk lyftiduft
½ tsk salt
1 tsk vanilludropar
1 ¼ dl mjólk
Aðferð
Hrærið smjörlíki og sykur saman létt og ljóst.
Hrærið egg, eitt í einu saman við.
Sigtið þurrefnin út í, blandið vökva saman við og hrærið
lítið.
Bakið á neðstu rim í ofninum við 180°C í 20 - 30 mín.
Smjörkrem
Smjörlíki
Flórsykur
1 egg
Smjörkrem er mikið smekksatriði og misjafnt hvernig fólk
vill hafa það, það er fínt að dassa bara smjörlíki og flórsykri og svo bara
smakka til hvernig þér finnst best. Að vísu var ekki til smjörlíki þegar ég
gerði þetta þannig ég notaðist við smjör, sem að mínu mati var eiginlega betra,
þrátt fyrir að kremið væri heldur gult á lit.
Vona að þið njótið, þetta er alveg hrikalega góð kaka!
Þangað til næst.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli