miðvikudagur, 29. október 2014

Søstrene Grene

Það er enginn að fara að segja mér að Søstrene Grene sé ekki besta búð á Íslandi. Þetta er algjörlega uppáhalds búðin mín og ef ég er í bænum geri ég mér iðulega ferðir í Smáralind eða Kringluna einungis til þess að komast í hana. Síðustu helgi var það einmitt málið. (ok. Stoppaði líka í nammilandi í Hagkaup, það var nú einu sinni laugardagur.) Það er ekki hægt að fara inní þessa búð og koma út með tómar hendur. Ekki hægt segi ég. Ég keypti nú allskonar vitleysu og fannst þetta allt hrikalega sniðugt og lífsnauðsynlegt. Tók upp úr pokanum áðan, ætla að leyfa því að flakka hingað inn. Þið getið dæmt um hversu lífsnauðsynlegir þessir hlutir eru.

Viðurkenni að fimm pakkar af límmiðum eru kanski heldur mikið.

Maður kemst að sjálfsögðu ekki í gegnum daginn án þess að eiga límbyssu.. eða?

Tvær krúttlegar krukkur og rör. Þarf ekki að færa rök fyrir þessu.

Skil ekki hvernig ég hef lifað hingað til án þess að eiga laufblaðs gatara.

Grænn vír. Mun koma að góðum notum. Ég lofa.

Æj. skulum ekkert ræða þessi augu. Ég er bara skotin í þeim.

Jújú ætli listamaðurinn í mér fari ekki að brjóta sér leið út í bráð.

Maður málar ekki striga án málningar og pensla. 

Labba aldrei út án þess að kaupa allavega tvær dokkur af bómullargarninu.

Já krakkar mínir. Lífsnauðsynlegir hlutir segi ég ykkur.

Pinterest og DIY hefur kanski haft einhver áhrif á þessi búðaferð. Sjáum til hvort þetta verði notað eitthvað í bráð. Kanski á næsta ári bara. Æj þetta myglar allavega ekki og eyðileggst.

Þangað til næst.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli