mánudagur, 13. október 2014

Það er leikur að lesa

Ég ólst upp við það að foreldrar mínir lásu fyrir mig bækur á hverju kvöldi fyrir svefn. Með tímanum þyngdust bækurnar og ég fór svo að lesa þær sjálf. Ég las mikið sem barn og hafði mikla ánægju af því. Svo komu gelgjuárin og ég gaf mér aldrei tíma til að lesa, nema kanski rétt í kringum jólin.

Í September sparkaði ég hinsvegar í rassinn á sjálfri mér og kláraði loksins bók sem ég fékk í jólagjöf fyrir tveimur árum og hafði oft og mörgum sinnum byrjað á en aldrei gefið mér tíma til að lesa hana af alvöru. Ó boy, hvað ég er ánægð að hafa sparkað í rassinn á mér. Þessi bók er ein besta bók sem ég hef lesið, hún er átaka mikil og fær mann mikið til að hugsa. Bókin heitir Herbergi eða Room á ensku og er eftir Emmu Donoghue. Frábær bók sem allir hefðu gott af að lesa. Hún fær fimm plús stjörnur frá mér.


Nú þegar opnað hefur verið bókaflóðið að nýju er engin leið að stoppa það. Ég er nú á þriðju bókinni og hún lofar agalega góðu. Hún heitir Best friends forever og er eftir Jennifer Weiner sem skrifaði In her shoes sem síðan var að bíómynd sem flestar stelpur þekkja.

Það er svo hollt fyrir hugann að lesa og ég hvet fólk til að sleppa nokkrum sjónvarpsþáttum í viku og taka frekar upp bókina. Maður gleymir því hvað þetta er gaman, þið verðið ekki fyrir vonbrigðum.

Þetta er staðan á náttborðinu mínu núna - ég elska það í botn!

laugardagur, 11. október 2014

Einn ferskur

Ég er búin að vera veik síðustu daga. Sem er alveg afskaplega leiðinlegt. Þoli ekki að detta úr rútínu og þurfa að hanga heima en samt ekki geta gert handavinnu, lesið eða horft á sjónvarpið. Loksins er ég samt orðin aðeins hressari og eyddi morgninum í að skoða blogg og insta. Það er svo kósý. Meistaramánuður í fullum gangi hjá svo mörgum þannig mér fannst ég tilneydd til að drulla mér á fætur og fá mér eitthvað gott og hollt að borða. Þar sem mataræðið hefur ekki verið upp á marga fiska í þessum veikindum.

Ég rétt komst á fætur í #sleepallday náttkjólnum mínum með tveggja daga fitugt hár og eins og draugur í framan. Ég þurfti virkilega á smá orkuboozti að halda svo ég hennti í einn ofurgómsætan boozt.



Í þessum er frosið berjamix, einn banani, kókósmjólk og hnetusmjör, þessu var öllu bara slumpað i blandarann í einhverjum hlutföllum. Setti svo smá hafra og chiafræ ofaná. Gerði að vísu ansi lítinn skammt þar sem matarlystin er ekki alveg upp á sitt besta þessa stundina. Frábært sem morgunmatur eða millimál, algjört lostæti. Mæli með þessu combói í boozt, klárt mál.


p.s. Já þetta voru einu rörin sem ég fann, þið afsakið það bara.

Þangað til næst. 

miðvikudagur, 8. október 2014

Hugleiðingar um blogg

Ég hef hugleitt mikið hvað mig langar til þess að gera við þessa bloggsíðu, hvort ég ætti að hætta eða beina henni í aðra átt. Eftir miklar vangaveltur og umræður við vinkonur mínar hef ég ákveðið að láta slag standa og reyna að hella mér í þetta. Allavega prufa. Þetta verður áhugablogg þar sem ég mun skrifa um áhugamál mín og það sem mér finnst spennandi og skemmtilegt. Vona að þið hafið gaman af.



ingalára 

mánudagur, 30. júní 2014

Sumardrykkirnir 2014


Í tilefni þess að ég lifði vinnuhelgina af, er komin í tveggja daga frí og það eru 5 dagar í írska daga snilld ákvað ég að deila með ykkur uppáhalds drykkjunum mínum þessa stundina.

Sumardrykkurinn

Passoa
Bacardi Razz
Ávaxtasafi að eigin vali

Íste bland

Klakar
Vodka
Ávaxtate - sem er búið að standa og orðið kalt
Sprite
Dass af grenadine
Sítróna

Ávaxta te 40/ 60 sprite

Útilegu drykkurinn

Baileys
Kókómjólk

Blandið í þeim hlutföllum sem þið viljið.
Grillið sykurpúða og dýfið í blandið.
Njótið.

Fríið byrjar vel, miðnætur strandblak í gær með betri vaktinni og AK í dag. Ég ætla að njóta mín í botn. Mæli með að þið gerið það sama, hvort sem þið eruð í fríi eða ekki.

Þangað til næst,
Inga Lára

sunnudagur, 22. júní 2014

Jónsmessu gleði


Fríhelgi gekk í garð á föstudaginn, gleði og gaman yfir því. Fór á minn fyrsta KF fótboltaleik sem endaði að vísu ekki vel og ég var beðin um að vera ekkert að koma aftur, væri greynilega ekki happadýr.

Förinni var síðan heitið á Hofsós á laugardaginn og hvort sem þið trúið því eða ekki þá fór ég í sund. ÉG sko. Rosalega fallegt - allir í sund á Hofsós! Svo var skellt í sig og á ball með leynikærastanum mínum, Matta Matt! Ég týndi stelpunum fyrstu 5 mínúturnar og var ein upp við sviðið allt ballið og söng úr mér líftóruna. Mikið sem það var gaman! Um nóttina ákvað ég svo að fara heim og sleppa því að gista. Allt í góðu með það, ég var með far og stelpurnar ætluðu bara að gista í tjöldunum. Hins vegar, þegar ég er búin að taka tvö skref inn heima hjá mér fæ ég sms: ert með lyklana af bilnum, erum föst hér. Ég tek kast og gref ofaní veskið mitt, finn ég ekki bara lyklana af bílnum. Andskotinn. Alltaf ég. Krakkarnir voru sem betur fer með sængurnar inni í tjöldunum en allt dótið var læst í bílnum.

Ég þurfti því að keyra inn á Hofsós í dag með lyklana af bílnum. Mikið gaman, mikið fjör. Eða svona næstum! Ætlaði að taka bensín áður en ég myndi leggja í hann, það fór ekki betur en svo að þegar ég var ný byrjuð að dæla hættir dælan allt í einu og sama hvað ég geri þá byrjar hún ekki að dæla, ég fer inn eins og algjör asni og bið um hjálp. Dælan er þá biluð báðum megin og ég búin að dæla bensíni fyrir rúmlega 800 kr. frábært. Borga þetta litla bensín og kaupi mér eina pullu með öllu í leiðinni. Fer svo yfir á aðra dælu og bruna síðan af stað. Þegar ég er komin á hofsós tek ég eftir því að ég er með eitthvað þornað á höndinni, jújú sinnep útum alla peysu, á beltinu og handleggnum á mér. Týpíst Inga Lára. En við komumst heil heim.

Ég ætla að eyða restinni af deginum upp í sófa, horfa á friends, prjóna og troða í mig pizzu sem ætti að vera orðin tilbúin, ætla að setja mig í stellingar í sófanum og senda Sigurjón að sækja pizzuna. 






Þangað til næst,
Inga Lára

þriðjudagur, 17. júní 2014

HÆ HÓ OG GLEÐILEGAN 17 JÚNÍ!



Í tilefni dagsins ákváðum við Sigurjón að skella okkur til Akureyrar. Röltum aðeins um miðbæjinn og þrátt fyrir að suða mikið fékk ég ekki minion helíumblöðru. Ég er enþá í fýlu. Þar sem flestir í bænum voru fjölskyldufólk og við kanski ekki alveg markaðshópurinn fyrir hátíðarhöldin skelltum við í okkur ís og héldum í smá bíltúr - Goðafoss var næstur á dagskrá. Mikið sem það er fallegt hér á íslandinu okkar.




Við nenntum ekki að keyra tilbaka strax þar sem dagurinn var rétt að byrja og við höfðum hvort eð er ekkert betra að gera, næst var haldið til Húsavíkur. Mikið sem það er fallegt að keyra um landið okkar, ég varð meira að segja að hætta að hekla til þess að horfa útum gluggan og dást af landinu. Þegar við nálguðumst Húsavík var landið allt fjólublátt - já lúpínan er út um allt! sem er í lagi mín vegna þar sem mér finnst allt sem er fjólublátt fallegt! Það var 20 stiga hita og blanka logn á Húsavík og að vísu allstaðar sem við stoppuðum. Við röltum niður að höfn og fengum okkur að borða á veitingastaðnum Gamli Baukur. Mæli klárlega með þeim stað, rosalega gaman að koma þar inn - flottur staður, góður matur og góð þjónusta! Innanhús hönnunin og þemað er eins og í bát, gasalega flott. Síðar röltum við aðeins um og ég rakst á gallerí, að sjálfsögðu löbbuðum við þangað - handavinnukjéllingin inní mér varð alveg óð. Æj það er svo gaman að skoða svona. Þetta heitir Kaðlín handverkshús, mæli með því að skoða það ef þið eruð einhvern tíman á flandi um Húsavík. 

Pepp dagsins var samt í boði litlu stelpunnar sem var að borða á veitingastaðnum við hliðina á handverkshúsinu, hún kallaði sjáiði prinsessuna og benti á MIG! já mögulega það sætasta í heimi, ég brosi það sem eftir lifir dags.

Við létum ekki hér við sitja og rúntuðum á ásbyrgi. Engin orð fá því lýst. VÁ! Að keyra þarna uppað var eins og í draumi, mér leið eins og ég væri ekki lengur á íslandi heldur stödd í einhverjum ævintýra heim. Vá .. bara vá! Röltum aðeins þarna um, skoðuðum og nutum sólarinnar. Skyldustaður fyrir alla íslendinga að fara og skoða. Klárt mál.



Til hamingju með daginn íslendingar og til hamingju með landið okkar - Það er það fallegasta, fátt sem toppar íslenska náttúru.

Þangað til næst,
Inga Lára

fimmtudagur, 12. júní 2014

Sólríkur Sumardagur á Sigló



Ljúfur sumardagur á Sigló í dag. Baðaði mig í sólinni fyrir utan Rauðku í dag og heklaði. Skellti mér síðan upp á Hvanneyraskál sem var agalega skemmtileg og létt ganga. Henti í pastarétt í kvöldmatin og tókum svo til í öllu húsinu í kvöld. Vinnuhelgi frammundan, sem er að vísu fínt þar sem ég má ekki við meiri sól næstu daga - er eins og rassskellt jarðaber í framan.



Viðurkenni að mér þykir alveg rosalega gaman að horfa á fjöllin og sjá snjóinn þar sem það er blanka logn og steikjandi hiti. Siglufjörður er agalega fallegur bær.

Ég er búin að sitja föst við heklið þessa tvo frídaga mína, fékk loksins tróð og kláraði kúrudúlluna mína



Er svo búin að vera að leika mér að hekla svona þríhyrninga í dag, hugmyndin er að gera eitthversskonar skraut fyrir garðpartý í sumar - sjáum hvernig til tekst, hef ekkert alltof mikla trú á mér.




Eigið annars góða helgi, ég ætla allavega að gera það!

Þangað til næst,
Inga Lára