Jájá ég veit að ég er einn lélegasti bloggari í heimi. En
hvað um það. Mikið búið að vera að gera hjá mér upp á síðkastið en um
helgina átti ég æðislega helgi með frænku minni í bústað. Mikið prjónað,
heklað, eldað, bakað og hlegið. Nauðsynleg næring fyrir huga og sál í góðum
félagsskap. Ég ætlaði að deila með ykkur smá af gómsæta matnum sem við hristum
framúr erminni um helgina.
Um leið og við komum á föstudeginum ákváðum við að skella í
kanilsnúða með kremi til að eiga og narta í um helgina. Við hentum í deig en
áttuðum okkur svo á því að ekki var til kökukefli í bústaðnum og við reyndum
við að nota flöskur með misgóðum afleiðingum. Við ákváðum því að skella í
kanilbollur. Gerðum bollur úr deiginu, smurðum ofan á með smjöri og settum svo
kanilsykur yfir. Það kom bara ágætlega út og ég gæti alveg ímyndað mér að gera
þetta aftur. Síðan skárum við þær í sundur og settum smjörkrem á milli.
Í Kvöldmatinn var hvítlauks marineruð kjúklingabringa, með
smjörsteiktum sveppum, sætum kartöflum og salati. Já smjörsteiktir sveppir eru
mögulega það besta sem ég veit. Klikka aldrei. Mæli með smjörsteiktum sveppum -
með öllu!
Við hentum svo í amerískar pönnsur í laugardagsbrunch, að
vísu bara tilbúnu flöskuna þar sem þú bætir bara við mjólk og hristir. Kom á
óvart hvað þær voru góðar. Þá sérstaklega með nutella, þeyttum rjóma,
jarðaberjum og mangó. Algjört lostæti.
Í kvöldmatinn vorum við svo með pasta með mexíkóostasósu
og hvítlauksbrauð. Klikkar aldrei.
Í kvöldsnarl var svo súkkulaði ís með baileys sem sósu og
fersk jarðaber. Ó svo gott.
Ég veit ekki með ykkur en persónulega finnst mér skylda að
borða góðan mat þegar maður er í bústað, já og mikið af honum.
P.s. Ef þið eruð á leið í bústað munið þá eftir að taka með
ykkur klósettpappír til öryggis. Þá lendiði ekki í því að þurfa að skeina ykkur
með baby wipes. Ég tala af biturri reynslu. Baby wipes virka ekki.
Þangað til næst.