Ég er búin að vera veik síðustu daga. Sem er alveg
afskaplega leiðinlegt. Þoli ekki að detta úr rútínu og þurfa að hanga heima en
samt ekki geta gert handavinnu, lesið eða horft á sjónvarpið. Loksins er ég
samt orðin aðeins hressari og eyddi morgninum í að skoða blogg og insta. Það er
svo kósý. Meistaramánuður í fullum gangi hjá svo mörgum þannig mér fannst ég
tilneydd til að drulla mér á fætur og fá mér eitthvað gott og hollt að borða.
Þar sem mataræðið hefur ekki verið upp á marga fiska í þessum veikindum.
Ég rétt komst á fætur í #sleepallday náttkjólnum mínum með
tveggja daga fitugt hár og eins og draugur í framan. Ég þurfti virkilega á smá
orkuboozti að halda svo ég hennti í einn ofurgómsætan boozt.
Í þessum er frosið berjamix, einn banani, kókósmjólk og hnetusmjör, þessu var öllu bara slumpað i blandarann í einhverjum hlutföllum. Setti svo smá hafra og chiafræ ofaná. Gerði að vísu ansi
lítinn skammt þar sem matarlystin er ekki alveg upp á sitt besta þessa
stundina. Frábært sem morgunmatur eða millimál, algjört lostæti. Mæli með þessu combói í boozt, klárt mál.
p.s. Já þetta voru einu rörin sem ég fann, þið afsakið það
bara.
Þangað til næst.









